Smittíðni á Spáni 30. desember 2021

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 30. desember 2021. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 1.316 ríflega tvöfalt hærra en fyrir viku síðan. Útlit er fyrir að það hækki enn meir eftir viku. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Tólf sjálfstjórnarhéruð á Spáni eru með lægri smittíðni en Ísland. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað og er Omicron-afbrigðið að koma sterkt inn. Omicron-afbrigðið er einkennandi fyrir sjöttu bylgjuna á Spáni. Það er 70 sinnum meira smitandi en veikindin eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Allir útsettir fyrir smiti

Smittíðnin á Kanaríeyjum er 1.158, nánast sú sama og á Íslandi og 1.024 í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir eru smitin á uppleið enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Bóluefnapassinn

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Comunidad Foral de Navarra 2369 38,24 Dökkrautt
La Rioja 2170 27,97 Dökkrautt
País Vasco 1955 23,07 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 1815 21,75 Dökkrautt
Castilla y León 1748 23,73 Dökkrautt
Aragón 1559 26,18 Dökkrautt
Extremadura 1351 16,77 Dökkrautt
Ísland/Iceland 1316 10,80 Dökkrautt
Región de Murcia 1211 18,31 Dökkrautt
Canarias 1158 16,90 Dökkrautt
Principado de Asturias 1125 15,90 Dökkrautt
Cataluña 1036 9,72 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 1036 22,55 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 1024 17,85 Dökkrautt
Illes Balears 1023 16,00 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 1022 5,79 Dökkrautt
Cantabria 999 13,92 Dökkrautt
Galicia 972 13,32 Dökkrautt
Andalucía 876 17,77 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 846 17,64 Dökkrautt

Loading

Deila: