Smittíðni á Spáni 6. janúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 6. janúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 2.796 aftur ríflega tvöfalt hærra en fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Fimm sjálfstjórnarhéruð á Spáni eru með hærri smittíðni en Ísland og þegar tölurnar eru skoðaðar að þá getur smittíðnin á Íslandi alveg eins tvöfaldast eftir viku. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Omicron-afbrigðið er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi og veikindin í kjölfarið eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Allir útsettir fyrir smiti

Vegna frétta af snaraukinni smittíðni á Keflavíkurflugvelli er réttast að það komi fram að smittíðnin á Kanaríeyjum jókst aðeins um það bil 50% á einni viku, talsvert minna en á Íslandi. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir eru smitin á uppleið enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.


Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra prófa Litur
Comunidad Foral de Navarra 5560 45,70 Dökkrautt
País Vasco 4143 36,46 Dökkrautt
Aragón 3403 46,27 Dökkrautt
La Rioja 3316 36,89 Dökkrautt
Castilla y León 3185 37,38 Dökkrautt
Ísland/Iceland 2796 14,75 Dökkrautt
Extremadura 2791 26,98 Dökkrautt
Cataluña 2774 32,64 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 2716 28,54 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 2398 35,30 Dökkrautt
Principado de Asturias 2206 22,02 Dökkrautt
Cantabria 2072 26,65 Dökkrautt
Galicia 1993 21,06 Dökkrautt
Canarias 1879 24,43 Dökkrautt
Illes Balears 1743 58,67 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 1704 31,16 Dökkrautt
Región de Murcia 1651 19,37 Dökkrautt
Andalucía 1582 29,16 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 1525 13,92 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 1348 25,49 Dökkrautt

Loading

Deila: