Smittíðni á Spáni 13. janúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 13. janúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 4.311 talsvert hærra en fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Þrjú sjálfstjórnarhéruð á Spáni eru með hærri smittíðni en Ísland og þegar tölurnar eru skoðaðar að þá er reiknað með að smittíðnin á Íslandi hafi náð jafnvægi. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Omicron-afbrigðið er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi og veikindin í kjölfarið eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin að minnsta kosti þrisvar sinnum fleiri á Íslandi en á Spáni. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir eru smitin á uppleið enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra prófa Litur
Comunidad Foral de Navarra 7403 54,42 Dökkrautt
País Vasco 6282 43,48 Dökkrautt
Aragón 5241 56,31 Dökkrautt
Ísland/Iceland 4311 15,94 Dökkrautt
Castilla y León 4300 43,82 Dökkrautt
La Rioja 4274 70,47 Dökkrautt
Cataluña 4161 35,97 Dökkrautt
Extremadura 3572 36,08 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 3410 44,06 Dökkrautt
Cantabria 3402 43,18 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 3035 29,42 Dökkrautt
Galicia 2985 33,54 Dökkrautt
Principado de Asturias 2973 31,70 Dökkrautt
Illes Balears 2754 27,43 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 2705 47,38 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 2684 47,38 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 2662 33,19 Dökkrautt
Canarias 2386 34,13 Dökkrautt
Región de Murcia 2268 28,15 Dökkrautt
Andalucía 1815 32,21 Dökkrautt

Loading

Deila: