Smittíðni á Spáni 20. janúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 20. janúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 4.782 og hefur hækkað lítillega frá því fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru sjö sjálfstjórnarhéruð á Spáni með hærri smittíðni en Ísland og þegar tölurnar eru skoðaðar að þá hefur smittíðnin á Íslandi náð jafnvægi. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Í sjálfstjórnahéraðinu La Roja þá hafa þeir náð þeim merka áfanga að hlutfallið er 130,96% af teknum sýnum, en það á að vera ómögulegt. Fyrst að sú tala fær að standa að þá þurfa lesendur að gera ráð fyrir að þetta háa hlutfall sé tilkomið vegna endurskoðunar á fyrr tölu. Omicron-afbrigðið er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi og veikindin í kjölfarið eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin að minnsta kosti þrisvar sinnum fleiri á Íslandi en á Spáni. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir eru smitin á uppleið enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra prófa Litur
Comunidad Foral de Navarra 6.400 51,65 Dökkrautt
La Rioja 6.266 130,96 Dökkrautt
País Vasco 6.186 45,64 Dökkrautt
Aragón 5.826 54,42 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 5.293 28,34 Dökkrautt
Región de Murcia 4.914 53,35 Dökkrautt
Cataluña 4.822 31,64 Dökkrautt
Ísland/Iceland 4.782 14,02 Dökkrautt
Castilla y León 4.724 43,43 Dökkrautt
Cantabria 4.246 40,45 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 4.064 65,75 Dökkrautt
Extremadura 3.809 35,35 Dökkrautt
Principado de Asturias 3.800 38,32 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 3.748 66,34 Dökkrautt
Illes Balears 3.706 35,33 Dökkrautt
Galicia 3.686 45,68 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 3.560 66,42 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 3.025 44,18 Dökkrautt
Canarias 2.849 39,31 Dökkrautt
Andalucía 1.656 37,04 Dökkrautt

Loading

Deila: