Ósk eftir liðsauka

Kalli á Spáni óskar eftir liðsauka

Óskað er eftir fólki sem vill spreyta sig á greinarskrifum um ýmis málefni á íslensku sem Íslendingar á Spáni gætu haft af bæði gagn og gaman. Margt kemur til greina, til dæmis skrif um golfvelli, minigolfvelli, veitingahús, bari, búðir, ferðalög, markverða staði, kynning á fyrirtækjum Íslendinga og bifreiðamál svo eitthvað sé nefnt en svo margt fleira kemur til greina.

Engin laun eru greidd enda er áskriftartekjum vefsins aðeins ætlað að greiða kostnað við rekstur hans á móti mér. Þessi greinarskrif gætu hentað til dæmis einhverjum sem hefur af því hagsmuni að koma sér á framfæri. Það býr að minnsta kosti ein grein í okkur öllum.

Einnig kemur það vel til greina að semja við stórnotendur á auglýsingum um ótakmarkaðar auglýsingar í heilt ár á https://kalli.is/auglysingar/ gegn vægu ársgjaldi.

Endilega hafið samband við mig í Messenger á https://m.me/kalli eða í rafpósti á kalli@kalli.is.

Mynd eftir Lisa hjá Pexels.

Deila: