Smittíðni á Spáni 1. febrúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 1. febrúar 2022 og það er gefið út núna með breyttu sniði. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 5.030 og stendur í stað frá því fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru sex sjálfstjórnarhéruð á Spáni með hærri smittíðni en Ísland, meðal annars Katalónía sem er með næsthæstu smittíðnina á Spáni en hefur aflagt notkun covid-passans innan marka sjálfstjórnarhéraðsins. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna er enn hátt enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi og er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi. Veikindin í kjölfar Omicron eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Ný viðmið – áhættumat að teknu tilliti til bóluefnastöðu

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C is the 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins and V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (5.030+5.030(100-77,73)/100)/2 = 3.075,0905 ≈ 3.075

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin að minnsta mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir er smitum ekkert að fækka enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðustu sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja frekari sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum.

 

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni nema í sjálfstjórnarhéraði Katalóníu

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.


Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ciudad de Ceuta 6128 75,87 3803 Dökkrautt
Cataluña 5967 75,87 3703 Dökkrautt
Región de Murcia 5935 75,87 3684 Dökkrautt
La Rioja 5333 75,87 3310 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 5291 75,87 3284 Dökkrautt
Aragón 5099 75,87 3165 Dökkrautt
Ísland/Iceland 5030 77,73 3075 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 4984 75,87 3093 Dökkrautt
Illes Balears 4350 75,87 2700 Dökkrautt
Cantabria 4306 75,87 2673 Dökkrautt
País Vasco 4284 75,87 2659 Dökkrautt
Castilla y León 4202 75,87 2608 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 4030 75,87 2501 Dökkrautt
Principado de Asturias 3854 75,87 2392 Dökkrautt
Extremadura 3609 75,87 2240 Dökkrautt
Galicia 3548 75,87 2202 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 3365 75,87 2088 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 2827 75,87 1755 Dökkrautt
Canarias 2539 75,87 1576 Dökkrautt
Andalucía 1612 75,87 1001 Dökkrautt

Loading

Deila: