Smittíðni á Spáni 10. febrúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið er með breyttu sniði og var uppfært 10. febrúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 5.400 og hefur því aukist frá því fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru öll sjálfstjórnarhéruðin á Spáni með lægri smittíðni en Ísland. Omicron-afbrigðið er bráðsmitandi og er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi. Vek athygli á því að Kanaríeyjar eru samkvæmt áhættumati þrefalt áhættuminni en fyrir viku síðan. Veikindin í kjölfar Omicron eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Ný viðmið – áhættumat að teknu tilliti til bóluefnastöðu

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C is the 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (5.400+5.400(100-80,46)/100)/2 = 3.227,58 ≈ 3.228

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Grímuskyldu utandyra hefur verið aflétt á Spáni nema í margmenni. Bóluefnapassinn er enn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi Omicron-smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðustu sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja frekari sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar.

 

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni nema í sjálfstjórnarhéraði Katalóníu

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

 

Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 5400 80,46 3227 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 4079 75,48 2540 Dökkrautt
Cataluña 3852 75,48 2398 Dökkrautt
Región de Murcia 3329 75,48 2073 Dökkrautt
Aragón 3194 75,48 1989 Dökkrautt
Cantabria 2972 75,48 1851 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 2946 75,48 1834 Dökkrautt
Galicia 2695 75,48 1678 Dökkrautt
Illes Balears 2530 75,48 1575 Dökkrautt
País Vasco 2518 75,48 1568 Dökkrautt
Castilla y León 2197 75,48 1368 Dökkrautt
Principado de Asturias 2189 75,48 1363 Dökkrautt
Extremadura 2155 75,48 1342 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 1908 75,48 1188 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 1893 75,48 1179 Dökkrautt
La Rioja 1874 75,48 1166 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 1844 75,48 1148 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 1312 75,48 817 Dökkrautt
Canarias 863 75,48 537 Dökkrautt
Andalucía 861 75,48 536 Dökkrautt

Loading

Deila: