Smittíðni á Spáni 17. febrúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 17. febrúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 6.664 og hefur því aukist á milli vikna. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru öll sjálfstjórnarhéruðin á Spáni með lægri smittíðni en Ísland. Omicron-afbrigðið er bráðsmitandi og er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi. Vek athygli á því að Kanaríeyjar eru samkvæmt áhættumati þrefalt áhættuminni en fyrir viku síðan. Veikindin í kjölfar Omicron eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks. Til fróðleiks má geta þess að álagið á Landspítalann er ekki lengur tilkomið vegna sjúklinga heldur fjarvista einkennalauss starfsfólks í einangrun.

Ný viðmið – áhættumat að teknu tilliti til bóluefnastöðu

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (6.664+6.664(100-80,93)/100)/2 = 3.967,41 ≈ 3.967

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Grímuskyldu utandyra hefur verið aflétt á Spáni nema í margmenni. Bóluefnapassinn er enn opinberlega í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu en vonir standa til að opinberlega verði notkun hans hætt um næstu mánaðamót. Það er samt orðið sjaldgæft að veitingahús spyrji eftir bóluefnapassanum og notkun hans því eiginlega sjálfhætt. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi Omicron-smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðustu sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja frekari sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar.

 

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni nema í sjálfstjórnarhéraði Katalóníu og Murcia

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

 

Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 6664 80,93 3968 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 2536 75,45 1579 Dökkrautt
Región de Murcia 2206 75,45 1373 Dökkrautt
Aragón 2197 75,45 1368 Dökkrautt
Cataluña 2041 75,45 1271 Dökkrautt
Galicia 2015 75,45 1255 Dökkrautt
Cantabria 1819 75,45 1133 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 1786 75,45 1112 Dökkrautt
Illes Balears 1641 75,45 1022 Dökkrautt
Extremadura 1519 75,45 946 Dökkrautt
País Vasco 1484 75,45 924 Dökkrautt
Castilla y León 1456 75,45 907 Dökkrautt
Principado de Asturias 1424 75,45 887 Dökkrautt
La Rioja 1350 75,45 840 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 1265 75,45 788 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 1039 75,45 647 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 1014 75,45 631 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 1005 75,45 626 Dökkrautt
Canarias 671 75,45 418 Dökkrautt
Andalucía 655 75,45 408 Dökkrautt

Loading

Deila: