Smittíðni á Spáni 2. desember 2021

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 2. desember. Eins og sést á myndinni þá eru smitin á uppleið víðast hvar í Evrópu. Samkvæmt eftirfarandi töflu hefur nýgengi innanlandssmita á Íslandi leitt til þess að landið er dökkrautt. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Öll nema eitt sjálfstjórnarhéraða Spánar mælast áfram með lægri smittíðni en Ísland þótt smitum hafi fjölgað þar talsvert og þau flest rauð. Aðeins tvö sjálfstjórnarhéruð Spánar eru appelsínugul og græni liturinn sést hvergi. Smit hafa aukist í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu og Kanaríeyjum. Eitt sjálfstjórnarhéraðanna er núna með fleiri smit en Ísland. Heilt yfir þá hafa smittölurnar verið á uppleið. Það hefur leitt til harðari smitvarna t.d. í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu þar sem bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri.

 

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðini %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Comunidad Foral de Navarra 578 13,44 Dökkrautt
Ísland/Iceland 557 4,15 Dökkrautt
País Vasco 455 10,89 Rautt
Aragón 346 11,79 Rautt
Cataluña 281 5,69 Rautt
Illes Balears 245 7,16 Rautt
Castilla y León 240 8,71 Rautt
Comunitat Valenciana 220 10,76 Rautt
Región de Murcia 217 8,02 Rautt
La Rioja 197 5,38 Rautt
Canarias 173 5,37 Rautt
Principado de Asturias 173 5,91 Rautt
Galicia 172 5,87 Rautt
Ciudad de Melilla 159 7,26 Rautt
Cantabria 153 4,38 Rautt
Comunidad de Madrid 137 4,39 Rautt
Castilla-La Mancha 131 7,06 Rautt
Andalucía 107 5,45 Rautt
Ciudad de Ceuta 96 2,13 Appelsínugult
Extremadura 85 3,01 Appelsínugult

Loading

Deila: