Smittíðni á Spáni 23. desember 2021

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 23. desember 2021. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 617 sem leiðir til þess að landið er dökkrautt. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Aðeins þrjú sjálfstjórnarhéruð á Spáni eru með lægri smittíðni en Ísland. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað og er Omicron-afbrigðinu að þakka. Það er 70 sinnum meira smitandi en veikindin eru vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Jólin eru dökkrauð

Smittíðnin á Kanaríeyjum er nánast sú sama og á Íslandi en 800 í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Það hefur leitt til harðari smitvarna t.d. í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu þar sem bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa frá og með 24. desember

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Comunidad Foral de Navarra 1654 14,53 Dökkrautt
País Vasco 1319 15,40 Dökkrautt
Aragón 1063 18,35 Dökkrautt
La Rioja 1039 16,56 Dökkrautt
Castilla y León 945 17,60 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 893 6,72 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 800 18,67 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 784 16,02 Dökkrautt
Illes Balears 761 12,65 Dökkrautt
Región de Murcia 737 14,00 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 699 14,03 Dökkrautt
Cataluña 697 7,12 Dökkrautt
Principado de Asturias 657 6,09 Dökkrautt
Galicia 629 10,13 Dökkrautt
Ísland/Iceland 617 5,13 Dökkrautt
Canarias 598 12,64 Dökkrautt
Cantabria 571 8,56 Dökkrautt
Extremadura 480 8,71 Rautt
Andalucía 436 13,80 Rautt
Castilla-La Mancha 369 11,19 Rautt

Loading

Deila: