Smittíðni á Spáni 27. janúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 27. janúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 5.045 og hefur hækkað lítillega frá því fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru sex sjálfstjórnarhéruð á Spáni með hærri smittíðni en Ísland og þegar tölurnar eru skoðaðar að þá hefur smittíðnin náð nokkurskonar jafnvægi. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna er alls staðar hátt enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi og er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi. Veikindin í kjölfar Omicron eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin að minnsta mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir er smitum ekkert að fækka enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum.

Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Danmörk afléttir takmörkunum

Frá og með 1. febrúar aflétta Danir flestum þeim takmörkunum sem þar hafa verið í gildi vegna minna álags á heilbrigðiskerfið vegna Omicron. Það sem vekur athygli er að smittíðnin þar er mun hærri en bæði á Íslandi og Spáni. Taflan er sett hér inn til samanburðar við þessa hefðbundnu sem kalli.is hefur birt hingað til.

Danmörk 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Hovedstaden 8715 9,28 Dökkrautt
Sjælland 7304 7,88 Dökkrautt
Syddanmark 7266 7,93 Dökkrautt
Midtjylland 7361 8,12 Dökkrautt
Nordjylland 6345 7,17 Dökkrautt

Ísland og Spánn

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Ciudad de Ceuta 6128 29,84 Dökkrautt
Cataluña 5967 32,41 Dökkrautt
Región de Murcia 5935 40,47 Dökkrautt
La Rioja 5333 57,59 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 5291 49,69 Dökkrautt
Aragón 5099 47,38 Dökkrautt
Ísland/Iceland 5045 15,76 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 4984 90,55 Dökkrautt
Illes Balears 4350 45,38 Dökkrautt
Cantabria 4306 39,57 Dökkrautt
País Vasco 4284 42,71 Dökkrautt
Castilla y León 4202 46,88 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 4030 75,63 Dökkrautt
Principado de Asturias 3854 32,98 Dökkrautt
Extremadura 3609 35,87 Dökkrautt
Galicia 3548 40,25 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 3365 49,44 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 2827 31,80 Dökkrautt
Canarias 2539 31,98 Dökkrautt
Andalucía 1612 37,20 Dökkrautt

Loading

Deila: