Smittíðni á Spáni og Íslandi 10. mars 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 10. mars 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 8.298 og er því nánast óbreytt á milli vikna. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru öll sjálfstjórnarhéruðin á Spáni með verulega lægri smittíðni en Ísland og níu þeirra eru ekki lengur dökkrauð heldur rauð.

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (8.298+8.298(100- 81,26)/100)/2 = 4.926,5226 ≈ 4.927

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum var ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki hafi aflagt bóluefnapassanum.

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.


Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 8298 81,26 4927 Dökkrautt
Canarias 958 76,72 591 Dökkrautt
Región de Murcia 830 76,72 512 Dökkrautt
Galicia 810 76,72 499 Dökkrautt
Cataluña 737 76,72 454 Dökkrautt
Extremadura 636 76,72 392 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 633 76,72 390 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 571 76,72 352 Dökkrautt
La Rioja 557 76,72 344 Dökkrautt
Castilla y León 540 76,72 333 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 494 76,72 305 Dökkrautt
Principado de Asturias 461 76,72 284 Rautt
Cantabria 460 76,72 283 Rautt
Illes Balears 453 76,72 279 Rautt
País Vasco 447 76,72 276 Rautt
Aragón 446 76,72 275 Rautt
Castilla-La Mancha 408 76,72 251 Rautt
Andalucía 398 76,72 245 Rautt
Ciudad de Ceuta 332 76,72 205 Rautt
Ciudad de Melilla 252 76,72 155 Rautt

Loading

Deila: