Smittíðni á Spáni og Íslandi 17. mars 2022

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (10.033+10.033(100- 81,26)/100)/2 = 5.956,5921 ≈ 5.957

Litir kortsins skv. áhættumati:

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum er ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki hafi aflagt bóluefnapassanum.

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 10033 81,26 5957 Dökkrautt
Galicia 929 77,17 570 Dökkrautt
Canarias 907 77,17 557 Dökkrautt
Extremadura 839 77,17 515 Dökkrautt
Región de Murcia 672 77,17 412 Dökkrautt
Cataluña 659 77,17 405 Dökkrautt
La Rioja 567 77,17 348 Dökkrautt
Castilla y León 567 77,17 348 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 508 77,17 312 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 498 77,17 306 Dökkrautt
Aragón 482 77,17 296 Rautt
País Vasco 472 77,17 290 Rautt
Illes Balears 464 77,17 285 Rautt
Cantabria 426 77,17 262 Rautt
Principado de Asturias 417 77,17 256 Rautt
Castilla-La Mancha 375 77,17 230 Rautt
Ciudad de Ceuta 334 77,17 205 Rautt
Comunidad de Madrid 319 77,17 196 Rautt
Andalucía 301 77,17 185 Rautt
Ciudad de Melilla 238 77,17 146 Rautt

Loading

Deila: