Smittíðni á Spáni og Íslandi 24. febrúar 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 24. febrúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 8.557 og hefur því aukist talsvert á milli vikna. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru öll sjálfstjórnarhéruðin á Spáni með verulega lægri smittíðni en Ísland. Vek athygli á því að Valensíska sjálfstjórnarhéraðið (1.532) og Murcia (1.351) eru með hæstu smittíðnina á Spáni ásamt Galicia (1.378) en Kanaríeyjar (641) eru með fjórðu lægstu smittíðnina og sjálfsagt styttist í að þær skipti um lit, úr dökkrauðu í rauðan.

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (8.557+8.557(100-80,93)/100)/2 = 5094,41 ≈ 5094

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Öllum sóttvarnartakmörkunum aflétt

Öllum sóttvarnartakmörkunum var aflétt á Íslandi frá og með miðnætti aðfararnætur 25. febrúar 2022 aðallega vegna þess að þær höfðu engin merkjanleg áhrif sem smitvörn. Til fróðleiks má geta þess að álagið á Landspítalann er ekki tilkomið vegna covid-smitaðra sjúklinga heldur fjarvista einkennalauss starfsfólks í einangrun. Gera má ráð fyrir að Spánn aflétti sínum sóttvörnum fljótlega.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Grímuskyldu utandyra hefur verið aflétt á Spáni nema í margmenni. Bóluefnapassinn er aflagður í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi Omicron-smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum var ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki hafi aflagt bóluefnapassanum.

Eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni nema í sjálfstjórnarhéraði Katalóníu, Murcia og Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu.

  • Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
  • Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
  • Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
  • Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 8557 80,93 5094 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 1532 76,05 949 Dökkrautt
Galicia 1378 76,05 854 Dökkrautt
Región de Murcia 1351 76,05 837 Dökkrautt
Cataluña 1173 76,05 727 Dökkrautt
Extremadura 1064 76,05 659 Dökkrautt
Cantabria 993 76,05 616 Dökkrautt
Castilla y León 982 76,05 608 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 975 76,05 604 Dökkrautt
Aragón 967 76,05 599 Dökkrautt
La Rioja 938 76,05 581 Dökkrautt
Illes Balears 911 76,05 565 Dökkrautt
Principado de Asturias 900 76,05 558 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 897 76,05 556 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 843 76,05 523 Dökkrautt
País Vasco 835 76,05 517 Dökkrautt
Canarias 641 76,05 397 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 639 76,05 396 Dökkrautt
Andalucía 545 76,05 338 Dökkrautt
Ciudad de Melilla 542 76,05 336 Dökkrautt

Loading

Deila: