Smittíðni á Spáni og Íslandi 3. mars 2022

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 3. mars 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 8.428 og hefur því eiginlega haldist óbreytt á milli vikna. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru öll sjálfstjórnarhéruðin á Spáni með verulega lægri smittíðni en Ísland.

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (8.428+8.428(100- 81,11)/100)/2 = 5010,0246 ≈ 5010

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Öllum sóttvarnartakmörkunum aflétt á Íslandi

Öllum sóttvarnartakmörkunum var aflétt á Íslandi frá og með miðnætti aðfararnætur 25. febrúar 2022 aðallega vegna þess að þær höfðu engin merkjanleg áhrif sem smitvörn. Til fróðleiks má geta þess að álagið á Landspítalann er ekki tilkomið vegna covid-smitaðra sjúklinga heldur fjarvista einkennalauss starfsfólks í einangrun. Gera má ráð fyrir að Spánn aflétti sínum sóttvörnum fljótlega.

Allir útsettir fyrir smiti

Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Grímuskyldu utandyra hefur verið aflétt á Spáni nema í margmenni. Bóluefnapassinn er aflagður í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu og víðar. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi Omicron-smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum var ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki hafi aflagt bóluefnapassanum.

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.


Staður 14 daga smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 8428 81,11 5010 Dökkrautt
Región de Murcia 1000 76,41 618 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 935 76,41 578 Dökkrautt
Galicia 932 76,41 576 Dökkrautt
Cataluña 860 76,41 532 Dökkrautt
Canarias 828 76,41 512 Dökkrautt
Comunidad de Madrid 777 76,41 480 Dökkrautt
Extremadura 677 76,41 419 Dökkrautt
La Rioja 671 76,41 415 Dökkrautt
Castilla y León 667 76,41 412 Dökkrautt
Aragón 647 76,41 400 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 645 76,41 399 Dökkrautt
Principado de Asturias 601 76,41 371 Dökkrautt
Castilla-La Mancha 595 76,41 368 Dökkrautt
Cantabria 591 76,41 365 Dökkrautt
Illes Balears 584 76,41 361 Dökkrautt
País Vasco 500 76,41 309 Dökkrautt
Andalucía 486 76,41 300 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 436 76,41 270 Rautt
Ciudad de Melilla 303 76,41 187 Rautt

Loading

Deila: