Smittíðni á Spáni og Íslandi 31. mars 2022

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (5.672+5.672(100- 81,30)/100)/2 = 3.366,332 ≈ 3.366

Litir kortsins skv. áhættumati:

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum er ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki hafi aflagt bóluefnapassanum.

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Staður Smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Ísland/Iceland 5672 81,30 3367 Dökkrautt
Galicia 999 78,42 607 Dökkrautt
Canarias 966 78,42 587 Dökkrautt
Extremadura 831 78,42 505 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 691 78,42 420 Dökkrautt
La Rioja 668 78,42 406 Dökkrautt
Principado de Asturias 661 78,42 402 Dökkrautt
Región de Murcia 657 78,42 400 Dökkrautt
Castilla y León 579 78,42 352 Dökkrautt
Illes Balears 577 78,42 351 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 573 78,42 348 Dökkrautt
Comunitat Valenciana 565 78,42 344 Dökkrautt
Cataluña 537 78,42 326 Dökkrautt
País Vasco 487 78,42 296 Rautt
Castilla-La Mancha 412 78,42 251 Rautt
Aragón 407 78,42 247 Rautt
Cantabria 379 78,42 230 Rautt
Andalucía 369 78,42 224 Rautt
Comunidad de Madrid 274 78,42 166 Rautt
Ciudad de Melilla 247 78,42 150 Rautt

Loading

Deila: