
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis lengur en 16 ár verða að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að vera teknir á kjörskrá. Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember árinu áður en kosningar eiga að fara fram.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára á kjördag.
Umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili á Íslandi.
Taktu mynd af vegabréfinu þínu og fylltu út eftirfarandi eyðublað fyrir 1. desember 2022.