Er gashitarinn gamall?

Nú þegar farið er að kólna á Spáni að þá er réttast að athuga með gashitarann. Er gashitarinn, gasslangan og gasjafnarinn of gamall? Hafðu þetta í huga til að forðast vandræði. Tíminn er svo fljótur að líða. Sé hitarinn, gasslangan og þrýstijafnarinn kominn til ára sinna að þá er ráðlagt að skipta öllu út.

Gamall gashitari

Gamall gashitari endist kannski í 10–15 ár og því getur borgað sig að skipta honum út fyrir nýjan með betri nýtni. Kostnaður um 100 Evrur.

Gasslanga og þrýstijafnari

Gasslanga og þrýstingsjafnari endast í 3-5 ár og það er því best að skipta um hvorutveggja á þriggja ára fresti öryggisins vegna. Kostnaður innan við 15 Evrur.

Loading

Deila: