Ísland enn á hættulista Spánar

Ísland er enn á lista Spænskra yfirvalda yfir hættusvæði vegna COVID-19 og verður það til miðnættis 26. september 2021 þrátt fyrir að vera orðið appelsínugult enda listinn byggður á viku eldri gögnum þegar ákvörðunin er tekin. Kröfur um skrániningu og gögn vegna ferða frá Íslandi til meginlands Spánar eru því óbreyttar a.m.k. til 26. september. Þær eru:
Allir farþegar þurfa að forskrá sig á https://www.spth.gob.es/ og sýna þarf QR kóða frá ofangreindri skráningu við komu.
Einnig þarf að sýna EITT eftirtalinna vottorða:
  • Vottorð um bólusetningu
  • Vottorð um fyrri sýkingu
  • Vottorð um neikvæða PCR niðurstöðu, ekki eldri en 72 tíma
  • Vottorð um neikvæða hraðprófs niðurstöðu, ekki eldri en 48 tíma

Börn 11 ára og yngri eru undanþegin því að þurfa að sýna vottorð en þau þarf að skrá.

Nánari upplýsingar má finna á https://www.spth.gob.es/
Deila: