Smittíðni á Spáni 14. október 2021

European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 14. október. Samkvæmt eftirfarandi töflu hefur nýgengi innanlandssmita á Íslandi aukist úr 134 í 143. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Öll sjálfstjórnarhéruð Spánar mælast áfram með lægri smittíðni en Ísland. Aðeins eitt þeirra er rautt vegna þess að hlutfall jákvæðra sýna er þar meiri en 4%. Ellefu sjálfstjórnarhéruð Spánar eru græn, þar á meðal bæði Valensíska sjálfstjórnarhéraðið og Kanaríeyjar. Sjö þeirra eru appelsínugul.

 

Sjálfstjórnarhérað 14 daga smittíðni %-hlutfall jákvæðra sýna Litur
Ísland/Iceland 143 1,60 Appelsínugult
Cataluña 97 2,63 Appelsínugult
Ciudad de Melilla 91 1,97 Appelsínugult
Castilla-La Mancha 84 6,28 Rautt
Aragón 79 3,53 Appelsínugult
Cantabria 74 2,29 Appelsínugult
Illes Balears 62 1,77 Appelsínugult
País Vasco 61 2,70 Appelsínugult
Comunidad de Madrid 56 1,89 Appelsínugult
Región de Murcia 48 2,64 Grænt
Extremadura 45 1,38 Grænt
Comunidad Foral de Navarra 44 1,17 Grænt
Ciudad de Ceuta 42 0,89 Grænt
Canarias 41 1,55 Grænt
Comunitat Valenciana 39 2,48 Grænt
Andalucía 38 2,10 Grænt
Castilla y León 35 1,72 Grænt
La Rioja 34 0,91 Grænt
Galicia 18 0,82 Grænt
Principado de Asturias 16 0,79 Grænt

Loading

Deila: