Smittíðni á Spáni og Íslandi 28. apríl 2022

Áhættumatið

Nú er tekið tillit til bóluefnastöðu almennings í áhættumati vegna Covid. Formúlan er eftirfarandi:

Áhættumat = (C+C*(100-V)/100)/2

þar sem C er 14 daga smittíðni sjálfstjórnarhéraðsins og V er hlutfall bólusettra sama svæðis. Í neðangreindri töflu er reyndar miðað við bólusetningarhlutfall ríkisins. Ef við setjum inn í formúluna íslensku tölurnar þá eru þær eftirfarandi:

Áhættumat Íslands (472+472(100- 80,34)/100)/2 = -281.596241766 ≈ 282

Litir kortsins skv. áhættumati:

  • Grænt, ef áhættumatið er lægra en 40;
  • Appelsínugult, ef áhættumatið er lægra en 100 en yfir 40;
  • Rautt, ef áhættumatið er lægra en 300 en yfir 100;
  • Dökkrautt, ef áhættumatið er 300 eða hærra;
  • Dökkgrátt, ef tíðni sýnataka er 600 eða lægri;
  • Grátt, ef það vantar upplýsingar.

Athugið! Prósenta fullbólusettra á Íslandi hefur lækkað úr 81,37 í 80,34 á einni viku og hafa því 1,26% misst bóluefnapassann þessa vikuna.

Bóluefnapassinn

Þrátt fyrir minni kröfur til ferðamanna um bóluefnapassa að þá er rétt að halda því til haga hvernig hægt er að nálgast hann. Gildistími allra bóluefnapassa á landamærum var styttur úr 12 mánuðum í 9 mánuði 1. febrúar 2022 og er miðað við hvaða dag fólk fékk síðast sprautu. Það kann að vera að þeir verði styttir enn meir þegar frá líður enda er þeim ætlað að ýta við fólki til að þiggja fleiri sprautur. Ferðamenn þurfa að huga að þessu. Hægt er að sækja nýjan bóluefnapassa sem sýnir réttan gildistíma. Ég sótti minn á heilsuvera.is og þar kemur fram nýr gildistími. Sjá mynd.

Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassanum er ætlað að veita bólusettum frelsi umfram óbólusetta til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús en aðallega til ferðalaga. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau eru dýr og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum og eru mörgum hvatning til að fara í sprauturnar. Það er því ánægjuefni að Ísland og fleiri ríki (ekki Spánn) hafi aflagt bóluefnapassanum að minnsta kosti um stundarsakir.

Meira gagn en ógagn?

Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.

Eflum ónæmiskerfið

Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.

Staður Smittíðni %-hlutfall bólusettra Áhættumat Litur
Castilla y León 748 78,65 454 Dökkrautt
Comunidad Foral de Navarra 746 78,65 453 Dökkrautt
Galicia 742 78,65 450 Dökkrautt
Principado de Asturias 735 78,65 446 Dökkrautt
Región de Murcia 550 78,65 334 Dökkrautt
Ciudad de Ceuta 534 78,65 324 Dökkrautt
Cantabria 500 78,65 303 Dökkrautt
Ísland/Iceland 472 80,34 282 Rautt
Extremadura 435 78,65 264 Rautt
La Rioja 431 78,65 261 Rautt
Canarias 415 78,65 252 Rautt
Castilla-La Mancha 377 78,65 229 Rautt
País Vasco 363 78,65 220 Rautt
Comunitat Valenciana 351 78,65 213 Dökkgrátt
Aragón 311 78,65 189 Dökkgrátt
Illes Balears 297 78,65 180 Rautt
Cataluña 263 78,65 160 Rautt
Ciudad de Melilla 240 78,65 146 Rautt
Andalucía 215 78,65 131 Dökkgrátt
Comunidad de Madrid 212 78,65 128 Rautt

Loading

Deila: