

Fyrirhugað er að ungmenni frá Árbæjarsöfnuði heimsæki íslenska og sænska söfnuðinn á Spáni í vetur. Síðan verður íslenskum og sænskum ungmennum boðið í heimsókn til Árbæjarsafnaðar. Af því tilefni verður samkirkjuleg messa með sænska söfnuðinum í Torrevieja sunnudaginn 31. ágúst næstkomandi kl. 11:00. Starfsmenn Árbæjarsafnaðar ásamt Gísla Gunnarssyni vígslubiskupi heimsækja okkur af því tilefni, kynna ungmennaskiptin og skrá niður áhugasama.
Ungmennaskiptin eru að mestu kostuð með Erasmus-styrk frá Evrópusambandinu. Lítill kostnaður fylgir því ferðum og uppihaldi.
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir bæði íslensk og sænsk ungmenni á Spáni, til að kynnast innbyrðis og kynnast öðrum ungmennum í kirkjulegu starfi á Íslandi.
ATH! Samkirkjulega messan með sænska söfnuðinum í Torrevieja verður í sænsku kirkjunni sunnudaginn 31. ágúst 2025 kl. 11:00 að Urb. Jardin del Mar III, 1A, ES-03184 Torrevieja.
![]()
