Útfaratryggingar Grupo Rocamer

Rest in peace

10% afsláttur í boði

Ágætt er fyrir þá sem dvelja langdvölum á Spáni að huga að tryggingarmálum sínum. Ekki er sjálfgefið að menn fái til dæmis líftryggingu eða útfarartryggingu eftir hjartaáfall. Við eftirgrennslan var mælt með Grupo Rocamer, áratugagömlu fjölskyldufyrirtæki, sem rekur þrjár útfarastofur hér á Costa Blanca, Spáni, auk þess sem þeir eiga tvö tryggingarfélög. Fyrirtækið krefst ekki læknisvottorðs en spyr örfárra spurninga er varða heilsuna. Þær eru orðaðar þannig að flestum reynist auðvelt að svara þeim með jákvæðum hætti.

Auk fyrirframgreiddra jarðarfara býður fyrirtækið fólki á öllum aldri hagkvæmar útfarartryggingar. Af fyrirframgreiddum jarðarförum bjóða þeir félagsmönnum Íslendingafélagsins á Spáni og Félags húseigenda á Spáni (FHS) 100 evru afslátt frá útfarargjaldskrá. Af útfarartryggingum bjóða þeir 10% afslátt.

Með kaupunum fylgir yfir 90 síðna afsláttarbók af einkarekinni heilbrigðisþjónustu, þar með talinni tannlæknaþjónustu, og kort sem hægt er að hafa í veskinu og framvísa.

Kalli keypti af þeim útfarartryggingu fyrir sig og sinn maka og greiðir af tryggingunni mánaðarlega. Innifalið í tryggingunni er flutningur til Spánar hvaðan sem er í hinum vestræna heimi, líkbrennsla, duftker og minningarathöfn, þrjú eintök af dánarvottorði á spænsku og þrjú á ensku auk alþjóðlegra flutningspappíra. Duftkerið er svo hægt að flytja til Íslands frítt í handfarangri og koma duftkerinu til Fossvogskirkjugarðs þar sem bæði minningarathöfnin og duftkersreiturinn er eftirlifendum að kostnaðarlausu.

Það er full ástæða til að huga að þessum málum svo aðstandendur verði ekki fyrir íþyngjandi útgjöldum við andlát ættingja.

Vinsamlegast hafið samband við, enskan tengilið Grupo Rocamer:

Keith Collyer
Tel.: +34 650 461 816
Netfang: keith.rocamer@live.co.uk
Vefsíða: https://gruporocamer.es
Facebook: keith.rocamer

Útgefið efni Grupo Rocamer:

Bæklingur Grupo Rocamer

Þjónusta Grupo Rocamer

Fyrirframgreidd útfararþjónusta – 100€ afsláttur

Iðgjöld af útfarartryggingu – 10% afsláttur

 

Mælt með lestri greinar um arf og erfðaskrár.

Annað áhugavert efni:

Deila: