
Kalli á Spáni óskar eftir liðsauka
Óskað er eftir fólki sem vill spreyta sig á greinarskrifum um ýmis málefni á íslensku sem Íslendingar á Spáni gætu haft af bæði gagn og gaman. Margt kemur til greina, til dæmis skrif um golfvelli, minigolfvelli, veitingahús, bari, búðir, ferðalög, markverða staði, kynning á fyrirtækjum Íslendinga og bifreiðamál svo eitthvað sé nefnt en svo margt fleira kemur til greina.
[br]
Engin laun eru greidd enda er áskriftartekjum vefsins aðeins ætlað að greiða kostnað við rekstur hans á móti mér. Þessi greinarskrif gætu hentað til dæmis einhverjum sem hefur af því hagsmuni að koma sér á framfæri. Það býr að minnsta kosti ein grein í okkur öllum.
[br]
[br]
