European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 16. september. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 158 og var Ísland sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Borgríkin tvö í Afríku sem tilheyra Spáni tróna enn á toppnum. Smittíðnin í Kanaríeyjum mælist áfram næstlægst og Valensíska sjálfstjórnarhéraðið er þriðja lægst. Alls eru 11 sjálfstjórnarhéruð með lægri smittíðni en Ísland. Þegar hlutfall jákvæðra sýna er skoðað að þá kemur í ljós að liturinn á sjálfstjórnarhéruðunum með minni tíðni smita en Ísland eru rauð vegna þess að hlutfall jákvæðra sýna er 4% eða meira.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Ciudad de Melilla | 330 | 10,0 | Rautt |
Ciudad de Ceuta | 241 | 5,5 | Rautt |
Cantabria | 209 | 5,5 | Rautt |
Castilla-La Mancha | 206 | 11,0 | Rautt |
País Vasco | 205 | 5,7 | Rautt |
Cataluña | 186 | 6,2 | Rautt |
Extremadura | 168 | 3,6 | Appelsínugult |
Illes Balears | 163 | 4,2 | Rautt |
Ísland/Iceland | 158 | 1,1 | Appelsínugult |
Castilla y León | 155 | 4,4 | Rautt |
Aragón | 146 | 6,5 | Rautt |
Comunidad de Madrid | 144 | 4,0 | Rautt |
Comunidad Foral de Navarra | 128 | 3,9 | Appelsínugult |
Región de Murcia | 122 | 5,7 | Rautt |
Andalucía | 121 | 5,0 | Rautt |
La Rioja | 115 | 2,6 | Appelsínugult |
Galicia | 115 | 3,2 | Appelsínugult |
Comunitat Valenciana | 111 | 5,8 | Rautt |
Canarias | 79 | 3,2 | Appelsínugult |
Principado de Asturias | 42 | 1,2 | Grænt |