
Íslenskir öryrkjar sem búa einir og hafa engar aðrar tekjur en frá TR eru í tekjudálkinum Ísland. Ef þeir flytja til Spánar þá missa þeir bæði heimilisuppbót (547.376) og framfærsluuppbót (904.248) og fá þær tekjur sem eru sýndar hérna í seinni dálkunum tveimur. Þar eru tekjurnar samkvæmt reiknivél TR en skattarnir eru spænskir og umreiknaðir í krónur. Eins og gengi íslensku krónunnar hefur þróast að undanförnu þá ættu allir öryrkjar og ellilífeyrisþegar erlendis að halda heimilisuppbót.
Í Reiknivél lífeyris 2021 í þessu dæmi þá er miðað við öryrkja sem varð öryrki 50 ára og hefur aldrei búið erlendis.

Gengið var 156,70 um síðustu áramót og er miðað við það hér.
| Íslenskir öryrkjar án spænsks örorkumats | Ísland | Spánn ISK | Spánn EUR |
|---|---|---|---|
| Árstekjur | 4.231.536 | 3.385.994 | 21.608,13 |
| Frádreginn skattur | 1.297.236 | 506.368 | 3.231,45 |
| Persónuafsláttur (Nýting skattkorts 100%) | 609.504 | 869.685 | 5.550,00 |
| Samtals árstekjur eftir skatt | 3.437.028 | 2.879.626 | 18.376,68 |
| Meðaltekjur á mánuði eftir skatt | 286.419 | 239.969 | 1.531,39 |
| Mimunur á mánuði | 46.450 |
| Íslenskir öryrkjar án spænsks örorkumats | Ísland | Spánn ISK | Spánn EUR |
|---|---|---|---|
| Árstekjur | 4.231.53 | 3.385.994 | 21.608,13 |
| Frádreginn skattur | 1.297.236 | 463.119 | 2.955,45 |
| Persónuafsláttur (Nýting skattkorts 100%) | 609.504 | 1.049.890 | 6.700,00 |
| Samtals árstekjur eftir skatt | 3.437.028 | 2.922.875 | 18.652,68 |
| Meðaltekjur á mánuði eftir skatt | 286.419 | 243.573 | 1.554,39 |
| Mimunur á mánuði | 42.846 |
Samkvæmt þessum töflum er tekjutapið eftir skatta 46.450 á mánuði eða 42.846 séu menn 65 ára eða eldri. Til þess að njóta lægra verðlags á Spáni að fullu þyrfti gengið á Íslensku krónunni gagnvart Evru að vera um það bil 135 krónur eða um 17% hagstæðara en það er um þessar mundir. Verðlag á Spáni er mun hagstæðara en á Íslandi og munar þar mestu um að íbúðarleiga á almennum markaði er um 70% ódýrari og matvæli um 50% ódýrari. Sjá nánar samanburð á verðlagi í Reykjavík og Torrevieja á https://www.numbeo.com/cost-of-living/compare_cities.jsp?country1=Iceland&country2=Spain&city1=Reykjavik&city2=Torrevieja
Hér er einnig nýleg grein í Fréttatímanum sem heitir Fátækt flóttafólk frá Íslandi – Íslendingar flýja okur og óstjórn og flytja til Spánar
Viljirðu slá inn þínar eigin forsendur þá er Reiknivél TR hér og svo er hægt að nálgast skattareiknivélina á Spáni hér.
![]()
