European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 30. desember 2021. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 1.316 ríflega tvöfalt hærra en fyrir viku síðan. Útlit er fyrir að það hækki enn meir eftir viku. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Tólf sjálfstjórnarhéruð á Spáni eru með lægri smittíðni en Ísland. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna hefur alls staðar hækkað og er Omicron-afbrigðið að koma sterkt inn. Omicron-afbrigðið er einkennandi fyrir sjöttu bylgjuna á Spáni. Það er 70 sinnum meira smitandi en veikindin eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.
Allir útsettir fyrir smiti
Smittíðnin á Kanaríeyjum er 1.158, nánast sú sama og á Íslandi og 1.024 í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir eru smitin á uppleið enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.
Eflum ónæmiskerfið
Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.
Bóluefnapassinn
Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei.
Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa
- Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
- Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
- Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
- Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Comunidad Foral de Navarra | 2369 | 38,24 | Dökkrautt |
La Rioja | 2170 | 27,97 | Dökkrautt |
País Vasco | 1955 | 23,07 | Dökkrautt |
Comunidad de Madrid | 1815 | 21,75 | Dökkrautt |
Castilla y León | 1748 | 23,73 | Dökkrautt |
Aragón | 1559 | 26,18 | Dökkrautt |
Extremadura | 1351 | 16,77 | Dökkrautt |
Ísland/Iceland | 1316 | 10,80 | Dökkrautt |
Región de Murcia | 1211 | 18,31 | Dökkrautt |
Canarias | 1158 | 16,90 | Dökkrautt |
Principado de Asturias | 1125 | 15,90 | Dökkrautt |
Cataluña | 1036 | 9,72 | Dökkrautt |
Castilla-La Mancha | 1036 | 22,55 | Dökkrautt |
Comunitat Valenciana | 1024 | 17,85 | Dökkrautt |
Illes Balears | 1023 | 16,00 | Dökkrautt |
Ciudad de Ceuta | 1022 | 5,79 | Dökkrautt |
Cantabria | 999 | 13,92 | Dökkrautt |
Galicia | 972 | 13,32 | Dökkrautt |
Andalucía | 876 | 17,77 | Dökkrautt |
Ciudad de Melilla | 846 | 17,64 | Dökkrautt |