European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 27. janúar 2022. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 5.045 og hefur hækkað lítillega frá því fyrir viku síðan. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Nú eru sex sjálfstjórnarhéruð á Spáni með hærri smittíðni en Ísland og þegar tölurnar eru skoðaðar að þá hefur smittíðnin náð nokkurskonar jafnvægi. Prósentuhlutfall jákvæðra sýna er alls staðar hátt enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi og er einkennandi fyrir smitin bæði á Spáni og Íslandi. Veikindin í kjölfar Omicron eru mun vægari verði á annað borð eftir þeim tekið. Gert er ráð fyrir að um helmingur fullorðinna fái engin einkenni og um 75% yngra fólks.
Allir útsettir fyrir smiti
Þótt það komi ekki fram í töflunni að þá eru PCR-prófin að minnsta mun fleiri á Íslandi en á Spáni. Bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu. Auk þess er frá og með 24. desember skylt að vera með maska utandyra. Þrátt fyrir bólusetningar og strangari sóttvarnir er smitum ekkert að fækka enda Omicron-afbrigðið bráðsmitandi. Spítalainnlögnum hefur fækkað enda veikindi smitaðra vægari. Allir eru útsettir fyrir smiti án tillits til bóluefnastöðu viðkomandi.
Bóluefnapassinn
Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei. Bóluefnapassinn veitir bólusettum frelsi til að sækja t.d. veitingahús, bíó eða leikhús. Aðrir þurfa að framvísa PCR-prófi en þau bæði kosta og hafa afar takmarkaða endingu. Vissulega hafa þessar aðgerðir letjandi áhrif á félagslíf fólks í báðum ríkjunum.
Allir eldri en 12 ára þurfa að framvísa covid-passa á Spáni
- Á öllum veitingastöðum og börum hvort sem það er inni eða úti
- Í kvikmyndahúsum, fjölnota salarkynnum, sirkusum og hátíðarstöðum þar sem boðið er upp á mat eða drykk á sýningum, athöfnum eða við notkun húsnæðis
- Á tónlistarhátíðum innan- og utandyra þar sem varanleg notkun grímu er ekki framkvæmanleg
- Á líkamsræktarstöðvum þar sem varanleg notkun grímunnar er nauðsynleg og í innisundlaugum
Meira gagn en ógagn?
Canadian Covid Care Alliance, samtök með yfir 500 lækna innan sinna vébanda, hefur gefið út skýrslu sem heitir More Harm Than Good og er hægt að nálgast hana á PDF-formi hér. Skýrslan er líka kynnt á rúmlega hálftíma myndbandi sem hægt er að nálgast hér. Independent Fact Checkers gera tvær athugasemdir við skýrsluna en þær báðar eru léttvægar þegar litið er á skýrsluna í heild sinni.
Eflum ónæmiskerfið
Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla ónæmiskerfið og slá á sjúkdómseinkenni Covid-19 ef við á annað borð smitumst eða fáum aukaverkanir af sprautunum. Sjá grein um það hér.
Danmörk afléttir takmörkunum
Frá og með 1. febrúar aflétta Danir flestum þeim takmörkunum sem þar hafa verið í gildi vegna minna álags á heilbrigðiskerfið vegna Omicron. Það sem vekur athygli er að smittíðnin þar er mun hærri en bæði á Íslandi og Spáni. Taflan er sett hér inn til samanburðar við þessa hefðbundnu sem kalli.is hefur birt hingað til.
Danmörk | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Hovedstaden | 8715 | 9,28 | Dökkrautt |
Sjælland | 7304 | 7,88 | Dökkrautt |
Syddanmark | 7266 | 7,93 | Dökkrautt |
Midtjylland | 7361 | 8,12 | Dökkrautt |
Nordjylland | 6345 | 7,17 | Dökkrautt |
Ísland og Spánn
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Ciudad de Ceuta | 6128 | 29,84 | Dökkrautt |
Cataluña | 5967 | 32,41 | Dökkrautt |
Región de Murcia | 5935 | 40,47 | Dökkrautt |
La Rioja | 5333 | 57,59 | Dökkrautt |
Comunidad Foral de Navarra | 5291 | 49,69 | Dökkrautt |
Aragón | 5099 | 47,38 | Dökkrautt |
Ísland/Iceland | 5045 | 15,76 | Dökkrautt |
Comunitat Valenciana | 4984 | 90,55 | Dökkrautt |
Illes Balears | 4350 | 45,38 | Dökkrautt |
Cantabria | 4306 | 39,57 | Dökkrautt |
País Vasco | 4284 | 42,71 | Dökkrautt |
Castilla y León | 4202 | 46,88 | Dökkrautt |
Ciudad de Melilla | 4030 | 75,63 | Dökkrautt |
Principado de Asturias | 3854 | 32,98 | Dökkrautt |
Extremadura | 3609 | 35,87 | Dökkrautt |
Galicia | 3548 | 40,25 | Dökkrautt |
Castilla-La Mancha | 3365 | 49,44 | Dökkrautt |
Comunidad de Madrid | 2827 | 31,80 | Dökkrautt |
Canarias | 2539 | 31,98 | Dökkrautt |
Andalucía | 1612 | 37,20 | Dökkrautt |