Fyrstu skrefin fyrir flutning til Spánar

Hafirðu hug á að flytja til Spánar en aldrei dvalið þar áður að þá er best að máta sig við Spán til að byrja með sem ferðamaður. Sumir gera það í stuttu fríi en mælt er með vetrarleigu í þrjá, sex og jafnvel níu mánuði. 

  • Taka húsnæði á leigu

Það er mikilvægast að tryggja sér húsnæði fyrir dvölina svo fólk eigi síður á hættu að lenda á vergangi eða búa inni á öðrum. Það gæti hæglega leitt til vináttuslita verði dvölin of löng. Það er því best að tryggja sér húsnæði þann tíma sem til stendur að verja á Spáni tímabundið. 

  • Evrópska sjúkratryggingakortið

Það þarf að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið sem útgefið er af Sjúkratryggingum Íslands og gegn framvísun þess og vegabréfs getur viðkomandi notið frírrar heilbrigðisþjónustu á Spáni sem ekki er hægt að fresta þar til viðkomandi snýr aftur til Íslands.

  • Ökuskírteini

Sértu með gamalt ökuskírteini þá er rétti tíminn til að endurnýja það áður en haldið er af stað. Ástæðan er að ökuskírteinið er samevrópskt og gildir mest í 15 ár frá útgáfudegi. Það er minna vesen að endurnýja það fyrir brottför heima heldur en eftir flutning lögheimilisins úr landi til Spánar. Best er að vera með ökuskírteini sem gefið er út til sjötugs eftir 55 ára aldur ökuskírteinishafans.

  • Vegabréfið

Best er að vera með nýlega útgefið vegabréf til að losna við að standa í endurnýjun þess skömmu eftir komuna til Spánar. Því fleiri ár sem það gildir eftir áætlaða dvöl því betra. Best er að hafa það í gildi að minnsta kosti 2 til 3 ár eftir áætlaðan dvalartíma.

  • Bankakort

Það er líka réttast að athuga gildistíma bankakortanna og fá þau endurútgefin.

  • Kalli á Spáni

Kalli á Spáni birtir ýmislegt sem gagnast Íslendingum á Spáni. Ársáskriftin að https://kalli.is er 12 Evrur og ákrifendur hafa ótakmarkaðan aðgang að öllu meginefni vefsins.

Loading

Deila: