European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 9. september. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 230 og var Ísland sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Borgríkin tvö í Afríku sem tilheyra Spáni tróna á toppnum. Smittíðnin í Kanaríeyjum mælist áfram næstlægst og Valensíska sjálfstjórnarhéraðið er fjórða lægst. Alls eru 12 sjálfstjórnarhéruð með lægri smittíðni en Ísland.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | Litur |
Ciudad de Melilla | 433 | Rautt |
Ciudad de Ceuta | 352 | Rautt |
Extremadura | 327 | Rautt |
Castilla-La Mancha | 303 | Rautt |
País Vasco | 264 | Rautt |
Cantabria | 236 | Rautt |
Illes Balears | 230 | Rautt |
Ísland/Iceland | 230 | Rautt |
Comunidad de Madrid | 209 | Rautt |
La Rioja | 206 | Rautt |
Galicia | 201 | Rautt |
Aragón | 200 | Rautt |
Castilla y León | 196 | Rautt |
Región de Murcia | 185 | Rautt |
Cataluña | 184 | Rautt |
Andalucía | 183 | Rautt |
Comunitat Valenciana | 170 | Rautt |
Comunidad Foral de Navarra | 162 | Rautt |
Canarias | 102 | Appelsínugult |
Principado de Asturias | 70 | Appelsínugult |