European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 8. október. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 134 og var Ísland sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Öll sjálfstjórnarhéruð Spánar mælast núna með lægri smittíðni en Ísland. Þrjú sjálfstjórnarhéruð eru lituð rauð vegna þess að hlutfall jákvæðra sýna er þar meiri en 4%. Átta sjálfstjórnarhéruð Spánar eru græn, þar á meðal bæði Valensíska sjálfstjórnarhéraðið og Kanaríeyjar.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Ísland/Iceland | 134 | 1,26 | Appelsínugult |
Ciudad de Melilla | 127 | 5,10 | Rautt |
Cataluña | 102 | 2,62 | Appelsínugult |
Aragón | 92 | 4,28 | Rautt |
Cantabria | 86 | 2,88 | Appelsínugult |
Ciudad de Ceuta | 86 | 1,85 | Appelsínugult |
Castilla-La Mancha | 84 | 4,92 | Rautt |
País Vasco | 79 | 2,19 | Appelsínugult |
Illes Balears | 74 | 1,57 | Appelsínugult |
Región de Murcia | 65 | 2,74 | Appelsínugult |
Comunidad de Madrid | 63 | 1,81 | Appelsínugult |
Andalucía | 52 | 2,35 | Appelsínugult |
Canarias | 49 | 1,94 | Grænt |
Comunitat Valenciana | 49 | 2,77 | Grænt |
Extremadura | 47 | 1,67 | Grænt |
La Rioja | 42 | 1,42 | Grænt |
Comunidad Foral de Navarra | 41 | 1,55 | Grænt |
Castilla y León | 38 | 1,59 | Grænt |
Galicia | 24 | 0,77 | Grænt |
Principado de Asturias | 16 | 0,55 | Grænt |