European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 14. október. Samkvæmt eftirfarandi töflu hefur nýgengi innanlandssmita á Íslandi aukist úr 134 í 143. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Öll sjálfstjórnarhéruð Spánar mælast áfram með lægri smittíðni en Ísland. Aðeins eitt þeirra er rautt vegna þess að hlutfall jákvæðra sýna er þar meiri en 4%. Ellefu sjálfstjórnarhéruð Spánar eru græn, þar á meðal bæði Valensíska sjálfstjórnarhéraðið og Kanaríeyjar. Sjö þeirra eru appelsínugul.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Ísland/Iceland | 143 | 1,60 | Appelsínugult |
Cataluña | 97 | 2,63 | Appelsínugult |
Ciudad de Melilla | 91 | 1,97 | Appelsínugult |
Castilla-La Mancha | 84 | 6,28 | Rautt |
Aragón | 79 | 3,53 | Appelsínugult |
Cantabria | 74 | 2,29 | Appelsínugult |
Illes Balears | 62 | 1,77 | Appelsínugult |
País Vasco | 61 | 2,70 | Appelsínugult |
Comunidad de Madrid | 56 | 1,89 | Appelsínugult |
Región de Murcia | 48 | 2,64 | Grænt |
Extremadura | 45 | 1,38 | Grænt |
Comunidad Foral de Navarra | 44 | 1,17 | Grænt |
Ciudad de Ceuta | 42 | 0,89 | Grænt |
Canarias | 41 | 1,55 | Grænt |
Comunitat Valenciana | 39 | 2,48 | Grænt |
Andalucía | 38 | 2,10 | Grænt |
Castilla y León | 35 | 1,72 | Grænt |
La Rioja | 34 | 0,91 | Grænt |
Galicia | 18 | 0,82 | Grænt |
Principado de Asturias | 16 | 0,79 | Grænt |