European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 16. desember 2021. Samkvæmt eftirfarandi töflu er nýgengi innanlandssmita á Íslandi 488 sem leiðir til þess að landið er rautt en ekki lengur dökkrautt. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Þrettán sjálfstjórnarhéraða Spánar mælast núna með lægri smittíðni en Ísland og prósentuhlutfall jákvæðra sýna er alls staðar hátt.
Rauð jól eða dökkrauð
Ekkert sjálfstjórnarhéraða Spánar er appelsínugult eða grænt og stefnir því í rauð jól, jafnvel dökkrauð. Smit hafa aukist aðeins í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu og á Kanaríeyjum. Sex sjálfstjórnarhéraðanna er núna með fleiri smit en Ísland. Heilt yfir þá hafa smittölurnar verið á uppleið. Það hefur leitt til harðari smitvarna t.d. í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu þar sem bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri.
Hægt er að sækja bóluefnapassann rafrænt og svo er hægt að nálgast hér app til að hlaða niður á símann og athuga hvort hann sé í gildi eður ei.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðni | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Comunidad Foral de Navarra | 1213 | 21,66 | Dökkrautt |
País Vasco | 921 | 21,81 | Dökkrautt |
Aragón | 716 | 23,94 | Dökkrautt |
Ciudad de Melilla | 529 | 18,19 | Dökkrautt |
Castilla y León | 524 | 18,09 | Dökkrautt |
Principado de Asturias | 515 | 13,22 | Dökkrautt |
Ísland/Iceland | 488 | 3,75 | Rautt |
Cataluña | 465 | 11,13 | Rautt |
Comunitat Valenciana | 465 | 22,32 | Rautt |
Illes Balears | 455 | 14,21 | Rautt |
La Rioja | 426 | 13,37 | Rautt |
Galicia | 412 | 11,22 | Rautt |
Región de Murcia | 398 | 16,36 | Rautt |
Ciudad de Ceuta | 378 | 6,80 | Rautt |
Cantabria | 361 | 10,59 | Rautt |
Canarias | 264 | 10,11 | Rautt |
Comunidad de Madrid | 252 | 9,94 | Rautt |
Extremadura | 219 | 8,00 | Rautt |
Castilla-La Mancha | 197 | 12,26 | Rautt |
Andalucía | 184 | 11,87 | Rautt |