Þessi skilaboð eru send af hökkuðum reikningum í Facebook Messenger og fólk er enn að falla fyrir þeim.
Ef þú heldur að Facebook-reikningurinn þinn hafi verið hakkaður og tekinn yfir, ættir þú að fara á þessa síðu til að tryggja reikninginn þinn. Þú munt verða beðinn um að breyta lykilorðinu þínu og skoða nýlega innskráningarvirkni.
Hugsanlega hefur verið brotist inn á reikninginn þinn ef þú tekur eftir:
- Netfangið þitt eða lykilorð hefur breyst.
- Nafnið þitt eða afmælisdagurinn hefur breyst.
- Vinabeiðnir hafa verið sendar til fólks sem þú þekkir ekki.
- Skilaboð hafa verið send sem þú skrifaðir ekki.
- Færslur eða auglýsingar hafa verið gerðar sem þú skrifaðir ekki
Þú getur líka skoðað þessi verkfæri og ábendingar til að halda reikningnum þínum öruggum. Þú gætir líka viljað læra hvernig á að verja sig gegn skaðlegum hugbúnaði sem getur hugsanlega stofnað reikningnum þínum í hættu.
Athugið! Ef netfangið sem tengist Facebook reikningnum þínum hefur breyst geturðu ógilt breytinguna. Þegar tölvupósti er breytt sendum við skilaboð á fyrri tölvupóstreikning með sérstökum hlekk. Þú getur smellt á þennan hlekk til að nota fyrra netfangið áfram og tryggt þannig reikninginn.
Nánari upplýsingar eru í greininni Hakkaður sem var skrifuð 3. október síðastliðinn.
Ath!
Þið getið smellt á Facebook-myndina af ykkur í hægra horninu efst og valið þar Settings & privacy –> Settings –> Security and login og þar er kafli sem heitir ‘Where you’re logged in‘ og þar geturðu smellt á ‘See all’. Ef þú kannast ekki við einhverja virknina þá geturðu farið í þrípunktinn og ýtt á ‘Log out’ takkann. Þú getur líka valið ‘LOG OUT OF ALL SESSIONS’ en skoðaðu þetta fyrst til að athuga hvort þú kannist ekki við eitthvað af þessum tengingum.