
European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) heldur úti upplýsingavef um Covid-19 með gagnlegum upplýsingum fyrir fólk á faraldsfæti. Kortið var uppfært 2. desember. Eins og sést á myndinni þá eru smitin á uppleið víðast hvar í Evrópu. Samkvæmt eftirfarandi töflu hefur nýgengi innanlandssmita á Íslandi leitt til þess að landið er dökkrautt. Ísland var sett inn í töfluna til samanburðar við sjálfstjórnarhéruð Spánar. Öll nema eitt sjálfstjórnarhéraða Spánar mælast áfram með lægri smittíðni en Ísland þótt smitum hafi fjölgað þar talsvert og þau flest rauð. Aðeins tvö sjálfstjórnarhéruð Spánar eru appelsínugul og græni liturinn sést hvergi. Smit hafa aukist í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu og Kanaríeyjum. Eitt sjálfstjórnarhéraðanna er núna með fleiri smit en Ísland. Heilt yfir þá hafa smittölurnar verið á uppleið. Það hefur leitt til harðari smitvarna t.d. í Valensíska sjálfstjórnarhéraðinu þar sem bóluefnapassinn hefur verið tekinn í notkun á veitingahúsum hafi þeir leyfi fyrir 50 manns eða fleiri.
Sjálfstjórnarhérað | 14 daga smittíðini | %-hlutfall jákvæðra sýna | Litur |
Comunidad Foral de Navarra | 578 | 13,44 | Dökkrautt |
Ísland/Iceland | 557 | 4,15 | Dökkrautt |
País Vasco | 455 | 10,89 | Rautt |
Aragón | 346 | 11,79 | Rautt |
Cataluña | 281 | 5,69 | Rautt |
Illes Balears | 245 | 7,16 | Rautt |
Castilla y León | 240 | 8,71 | Rautt |
Comunitat Valenciana | 220 | 10,76 | Rautt |
Región de Murcia | 217 | 8,02 | Rautt |
La Rioja | 197 | 5,38 | Rautt |
Canarias | 173 | 5,37 | Rautt |
Principado de Asturias | 173 | 5,91 | Rautt |
Galicia | 172 | 5,87 | Rautt |
Ciudad de Melilla | 159 | 7,26 | Rautt |
Cantabria | 153 | 4,38 | Rautt |
Comunidad de Madrid | 137 | 4,39 | Rautt |
Castilla-La Mancha | 131 | 7,06 | Rautt |
Andalucía | 107 | 5,45 | Rautt |
Ciudad de Ceuta | 96 | 2,13 | Appelsínugult |
Extremadura | 85 | 3,01 | Appelsínugult |