Mörg okkar þekkjum þetta – fyrst nefrennsli og svo kemur hóstinn. Algengasta orsök hósta er kvef. Hósti er dæmigert merki um ertingu í öndunarfærum og með kvefi, flensu og öðrum öndunarfærasýkingum mynda lungun meira slím til að losna við óværuna. Oft verður slímið þó svo þykkt að erfitt er að hósta upp. Acetylcystein gerir slímið þynnra og auðveldara að hósta upp. Berkjubólga, lungnabólga, astmi og alvarlegri lungnasjúkdómar eins og langvinn lungnateppa getur einnig valdið hósta. Því ætti ekki að vera of lengi með hósta án þess að leita læknis.
Á Íslandi og í Danmörku fást 600 mg freyðitöflur frá Mucolysin® en á Spáni voru keyptar 600 mg Acetylcysteine Pensa freyðitöflur með sama innihaldsefni og styrkleika.
Pakkningastærð –> | 10 stk | 20 stk | 50 stk |
---|---|---|---|
Stykkjaverð á Íslandi | 204,10 | 168,41 | 147,28 |
Stykkjaverð í Danmörku | 147,61 | 121,80 | 106,52 |
Stykkjaverð á Spáni | 39,81 | 32,85 | 28,73 |